Plaköt

Veggspjöld í mörgum stærðum, á ýmiss konar pappír, með eða án plasthúðunar.

Prent prentar veggspjöld í mörgum stærðum, á ýmiss konar pappír. A0-veggspjöld eru prentuð á 150 gr mattan pappír og hægt er að plasthúða til að auka endingu.

Sendu okkur tilboðsbeiðni til að fá verð í plaköt.

Sýnishorn

Hagnýtar upplýsingar

  • Afgreiðslutími er samdægurs í minni verkum (1–20 plaköt).
  • Lágmarksmagn er 1 plakat.
  • Best er að senda skrána sem PDF í réttri stærð.
  • Æskilegt er að hafa texta og aðrar upplýsingar að minnsta kosti 5 mm frá brún.
  • Ef litur á að ná út í jaðar þarf liturinn að blæða út fyrir jaðarinn.
  • Hægt er að velja um matta eða glansandi plasthúðun.
Fyrirsögn
Skurðarlína Blæðing út fyrir jaðar Texti minnst 5 mm frá brún