Límmiðar
Límmiðar í öllum stærðum og gerðum, á rúllu eða á örkum, skornir í hvaða lögun sem er.
Prent býður upp á stafrænt prentaða límmiða sem henta vel í minni upplög. Viðskiptavinir geta ráðið stærð og lögun að vild. Þarftu t.d. miða á bjórflöskur fyrir afmælið eða fyrirtækjapartíið? Minnsta mál að bjarga því. Með stafrænni prentun getur þú valið stærð og lögun eftir þínu höfði, í því magni sem hentar.
Límmiðar í öllum stærðum og gerðum, á rúllu eða á örkum.
Við prentum límmiða á rúllum sem notaðir eru á umbúðir fyrir matvæli, bjór, lyf, hreinlætisvörur og margt annað. Hægt er að prenta á pappír, álefni, plast, gull og silfur.
Auk þess eigum við alltaf mikið úrval óáprentaðra (blanco) límmiða á lager. Við veitum ráðgjöf um hagstæðustu lausnirnar og erum þekkt fyrir skjóta og góða þjónustu.
Límmiðarnir geta verið í hvaða lögun sem er. Vélarnar okkar sjá um að skera límmiðana í því formi sem viðskiptavinurinn óskar eftir.
Sendu okkur tilboðsbeiðni til að fá verð í límmiða.
Settu saman límmiðann
Límmiðarnir geta verið í hvaða lögun sem er og vélarnar skera þá í því formi sem þú óskar eftir. Veldu lögun, efni og hvort þeir komi á rúllu eða á örkum.
