Þjónusta
Forvinnsla, prentun og frágangur. Við tökum á móti verkefnum til uppsetningar eða tilbúnum gögnum til prentunar.

Forvinnsla
Vantar þig uppsetningu á nafnspjöldum, bæklingum, reikningum eða umbrot á blöðum eða bókum?
Í forvinnslunni er tekið á móti alls kyns verkefnum til uppsetningar. Einnig er tekið á móti tilbúnum gögnum og þau undirbúin fyrir prentun.
Viltu frekar láta okkur sjá um hönnunina? Hönnunarteymi Prent getur t.d. hannað nafnspjaldið fyrir þig.

Prentun
Prentun er okkar fag.
Hjá okkur starfa prentarar með mikla fagþekkingu og fagmenntun. Öflugur og fullkominn vélakostur skilar viðskiptavinum okkar vönduðu og góðu prentverki.
Litlaprent og Miðaprent státa af einum fullkomnasta og fjölbreyttasta tækjakosti prentsmiðja á landinu: fjöllita prentvélar, stafræn prentun og rúlluprentun fyrir límmiða.

Frágangur
Litlaprent býður upp á fjölbreytt úrval á frágangi prentverks.
Frágangur er t.d. brot, vírhefting, fræsing, gormun, kjallíming, gylling, laminering, stönsun, upphleyping og margt fleira.
Í vélasalnum eru m.a. brotvélar, skurðarlína og hefti- og fræsilína.
Frágangur í hnotskurn
Smelltu á aðferð til að sjá hvað hún gerir.
Brot
Arkir eru brotnar einu sinni eða oftar, t.d. í bæklinga, boðskort og markpóst.
Fá tilboð með brotÚr vélasalnum
Svipmyndir frá Skemmuvegi 4.
