Hvað viltu láta prenta?
Hér eru algengustu verkin. Er þitt verk ekki á listanum? Hafðu samband og spurðu.
Frá skjali til fullbúins verks
Forvinnsla, prentun og frágangur á einum stað, á Skemmuvegi 4 í Kópavogi.

Forvinnsla
Við aðstoðum við uppsetningu á prentverki, t.d. nafnspjöldum, bæklingum og reikningum, og sjáum um umbrot á blöðum og bókum. Einnig er tekið á móti tilbúnum gögnum og þau undirbúin fyrir prentun.

Prentun
Hjá okkur starfa faglærðir prentarar með mikla þekkingu. Öflugur og fullkominn vélakostur skilar viðskiptavinum okkar vönduðu og góðu prentverki.

Frágangur
Fjölbreytt úrval af frágangi prentverks, s.s. brot, vírhefting, fræsing, gormun, kjallíming, gylling, laminering, stönsun og upphleyping.
Frágangurinn skiptir máli
Veldu aðferð og sjáðu hvað gerist við prentgripinn.
Brot
Arkir eru brotnar einu sinni eða oftar, t.d. í bæklinga, boðskort og markpóst.
Fá tilboð með brotLímmiðar á rúllum frá Miðaprenti
Miðaprent sérhæfir sig í vörulímmiðum á rúllum fyrir matvælaiðnaðinn og hefur verið undir sama þaki og Litlaprent frá árinu 2014. Við prentum límmiða á umbúðir fyrir matvæli, bjór, lyf, hreinlætisvörur og margt annað, á pappír, álefni, plast, gull og silfur.
Þarftu bara nokkra miða á bjórflöskur fyrir afmælið? Með stafrænni prentun velur þú stærð og lögun eftir þínu höfði, í því magni sem hentar.
Skoða límmiða
Umhverfisvottuð prentsmiðja
Prent býður alhliða, umhverfisvæna prentþjónustu. Bréfsefni prentum við á Svansvottaðan skrifpappír og reikninga í einriti á umhverfisvottaðan pappír.
Ein trukkprentvél í sumarbústað
Prentsmiðjuna Litlaprent stofnaði Guðjón Long árið 1967 og var tækjakosturinn ein trukkprentvél sem staðsett var í sumarbústað á Digraneshæð. Í dag eru Litlaprent og Miðaprent í um 2.000 fm húsnæði á Skemmuvegi 4, enn í eigu og rekstri sömu fjölskyldu.
Sagan frá 1967Samstarfsaðilar
Fáðu tilboð í verkið
Til að tilboðsgjöf gangi hratt og vel fyrir sig þurfum við sem flestar upplýsingar um verkið:
- Hvernig verk?
- Magn?
- Stærð?
- Blaðsíðufjöldi?
- Í lit, svörtu eða bæði?




